Würth á Íslandi var stofnað 1988 og hefur nú þjónustað sína viðskiptavini í 20 ár. Wurth samsteypan samanstendur af 420 fyrirtækjum í 86 löndum. Würth á Íslandi ehf. einbeitti sér fyrst að þjónustu við bifreiðaverkstæði, en síðan við tré- og málmiðnaðinn ásamt þjónustu við almennan iðnað.
Með 20 sölumönnum og útibúum í Reykjavík, Kópavogi og Akureyri ásamt verslun og eigin útkeyrslu frá Vesturhrauni 5 Garðabæ þjónum við viðskiptavinum okkar með þjálfuðu starfsfólki. Heimsóknir okkar eru skipulagðar með vikulegu til mánaðarlegu millibili um allt Ísland.

Við undirbúum hverja heimsókn með tilliti til helstu söluvöru ásamt kynningu á vöruhópum eins og efnavöru, slípi- og skurðarverkfærum, persónuhlífum, rafmagnsvörum, festingum eða verkfærum. Í hverri heimsókn einbeitum við okkur að heildarlausn fyrir hvern vöruhóp, auk þess að fara yfir helstu söluvörur.
Við erum með á lager u.þ.b 8.000 helstu vörunúmer sem eru seld hjá Würth fyrirtækjunum.Til að nálgast viðskiptavini okkar vinnum við undir merkjum þess að "Fagfólk velur Wurth" og teljum okkur bjóða góðann kost með með einstakri þjónustu og faglegum lausnum í hverjum vöruhóp.



