|
Skemmtilegt golfmót Würth |
|
|
|
Á föstudaginn 27. júní var fyrsta Golfmót Würth haldið á Kili í Mosfellsbæ. 50 manns voru mættir galvaskir til að taka þátt og eiga góðan dag í sólinni. Þótt það hafi aðeins hvesst þegar líða tók á mótið voru menn í essinu sínu og margir hverjir skiluðu inn góðu skori. Það var Aðalsteinn Ingvarsson sem vann mótið í höggleik en Sigurður Ríkharð Árnason vann punktakeppnina. Í höggleiknum komu tveir menn inn í þriðja sætinu og myndaðist skemmtileg stemning þegar þeir fóru saman út á fyrstu braut til að leika bráðabana. Fyrsta umferð endaði jöfn og þurfti því að leika brautina aftur til þess að skera úr um þriðja sætið. það var Eyjólfur Kolbeinsson sem kláraði pakkann en í öðru sætinu varð Víðir Sveins Jónsson.


|