|
Við erum um þessar mundir að taka í notkun nýjan
Mercedes Benz Sprinter. Bíllinn er hlaðinn búnaði frá Benz og má þar
nefna 6 cyl mótor 184 hö, sjálfskiptingu, olíumiðstöð, upphituð
framrúða, aðgerðarhnappar í stýri, álfelgur, hjálparlokun á hliðarhurð
og fl.
Hér heima var sett í bílinn sérhönnuð ORSY Mobile
bílainnrétting frá okkur ásamt verkfærum og öðrum vörum sem gerir okkur
enn betur fært að koma vörum okkar og þjónustu á framfæri, en áður
hefur þekkst.
ORSY Mobil bílainnréttingarnar frá okkur eru að
sjálfsögðu til í ýmsum útfærslum og hægt að sníða að hvaða bíl sem er,
stórum sem smáum. Einnig fáanlegar fyrir skutbíla og aðra fólksbíla.
Þetta eru árekstraprófaðar einingar sem raðað er saman að óskum hvers
og eins, allt frá einföldustu hillu til hinnar veglegustu skúffuhirslu
með vinnuborði, skrúfstykki og þ.h.
Bílaklæðningar Ragnars Valssonar klæddi bílinn að innan og Spes Art sá um merkingar.
|