Please do not use this image. To retrieve the Wurth logo with please see Download section of http://www.wurth.com website. wuerth.com
Fasty

Wurth Iceland - football&fun Print Senda

Ágætu þátttakendur í Wurth Iceland – football&fun

Nú um helgina fer fram Wurth Iceland – football&fun knattspyrnumótið. Ætlunin er að hafa léttleikann og skemmtilegheitin í fyrirrúmi. Á mótið mæta fjölmörg íslensk lið, bæði úr Höfuðborginni og eins utan af landi. Auk þess mæta a.m.k. 4 erlend lið og a.m.k. tveir fyrrum leikmenn í ensku knattspyrnunni; Mark Walters (Liverpool) og Clayton Blackmore (Man Udt). Þeir munu leika með sérstöku úrvalsliði. Ég óska þess að menn lesi neðangreind atriði með nokkuð góðri athygli!

Dagskráin er sem hér segir:

Föstudaginn 2. nóvember er móttaka fyrir keppendur og fylgdarlið hjá Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1. Móttakan hefst kl. 17:30 og stendur til kl. 19:00. Þar verður mótið kynnt með formlegum hætti og gestum gefst kostur á að ræða við mann og annan og gæða sér á góðum veitingum. Menn eru eindregið hvattir til þess að mæta í þessa móttöku og eiga góða stund saman.

Laugardagsmorgunn 3. nóvember hefst svo knattspyrnumótið kl. 10:00 í Egilshöll. Minnt er á að mæta tímanlega og öll lið verða búin að leika fyrsta leik kl. 10:30. Liðum verður skipt niður í riðla miðað við aldur; 30 ára og eldri og svo 40 ára og eldri. Í Egilshöll verður sérstakur salur fyrir keppendur þar sem hægt verður að fá ýmsar veitingar. Að auki verður þar skjár þar sem m.a. verður hægt að horfa á leik Arsenal og Manchester United. Búist er við að mótinu ljúki um kl. 15:00.

Laugardagskvöld 3. nóvember er síðan lokahóf í Fylkishöll. Húsið opnar kl. 19:30 og er miðað við að hófið standi til miðnættis. Þá geta menn annað hvort farið heim eða enn frekar út á lífið. Á lokahófinu verður boðið upp á glæsilegan hátíðarkvöldverð auk þess sem boðið verður upp á skemmtiatriði, happdrætti og verðlaunaafhendingu.

Athugið sérstaklega:

Keppendur geta tekið maka sína á lokahófið og kostar það 3.000 krónur. Mjög gott væri að fá að vita tímanlega hversu margir gestir koma í tengslum við hvert og eitt lið. Hægt er að tilkynna slíkt á laugardagsmorgunn.

Við óskum eftir því að lið verði búin að greiða þátttökugjald (30 þúsund krónur að lágmarki) fyrir kl. 12:00 á föstudag. Þannig vitum við nákvæmlega fjölda liða sem tekur þátt í mótinu. Þetta er gert til þess að forðast leiðindi og endurröðun á leikjum á laugardag.

Greiða skal þátttökugjaldið á eftirfarandi reikning. Takið fram fyrir hvaða lið er verið að greiða:
Banki: 0525

Höfuðbók: 26

Reikningsnúmer: 6066

Kennitala: 150860 – 4669

 

 

 


< Fyrri   Næst >

© 2010 Würth á Íslandi ehf. Vesturhraun 5, 210 Garðabæ Sími: 530 2000 Fax: 530 2001