|
Prófessor Würth í heimsókn |
|
|
|
Helgina 11 til 13 maí heimsótti Prófessor Würth og hin svo kallaði Würthary
klúbbur, sem samanstendur
af 21 fyrrverandi framkvæmdarstjórar Würt
grúppunar, Würth á Íslandi.
Prófessorinn ásamt fylgdarliði
lenti með einkaþotum á Reykjavíkurflugvelli föstudaginn 11 maí.
Eftir að þeir voru búnir að skrá sig inn
á hótelið var farið með þá í heimsókn til Forseta Íslands,
Hr Ólafs Ragnars Grímssonar,
Ísfirðings :-).
Það fór mjög vel á með Prófessornum og Forsetans.
Við færðum
honum blómvönd í stærri kantinum,
í fánalitunum.
Blómavöndurinn var skreittur með límkíttistúpu, verkfærum og nokkrum efnavörum frá Würth,
forsetanum til mikillar ánægju :-) Prófessor Würth afhenti gjöfina.
Eftir forsetaheimsóknina var farið í Bláa lónið og síðan borðað þar um kvöldið.
Á laugardagsmorgun hélt Haraldur Leifsson framkvæmdastjóri Würth á Íslandi kynningu um
Würth Ísland,
og fór yfir helstu
kennitölur fyrirtækisins.
Að kynningunni lokinni afhenti Haraldur,
Prófessor Würth gjöf frá fyrirtækinu
sem var gestabók með
viðarkápu sem búið var að skera
Würth logóið í, ásamt nafni Würthary club.
Hugmyndin bak við þessa gjöf er sú að þeir sem
taka þátt í þessum ferðum klúbbsins skrái nöfn sín
í
bókina í hvert skipti semþeir hittast,
en næsta heimsókn verður hjá Würth íSt.Pétursborg í Rússlandi.
Í framhaldinu var haldinn
fundur þar sem Prófessor Würth kynnti stöðu Würth Grúppunar og
framtíðar horfur fyrirtækisins.
Eftir fundinn var farið með Wurtarana í skoðunarferð og Gullfoss og
Geysir meðal annars sóttir heim.
Eftir skoðunarferðina var hátíðarmatur á Perlunni.
Sunnudaginn
13 maí var áætlað að fara í stutta hvalaskoðunarferð, en þar sem veðrið var ekki upp á það besta
var farin stutt sjóferð kringum
eyjarnar og Reykjavík skoðuð frá sjó. Þegar í land var komið var farið
með rútu í
skoðunarferð
um Reykjavík, og Cobra listasýningin skoðuð í Listasafni Íslands.
Að lokum var haldið út á
Reykjavíkurflugvöll þar sem starfsmenn Würth á Íslandi voru kvaddir með
virtum og þakkað fyrir
sérlega vel skipulagða ferð sem tókst sérstaklega vel að mati gestanna.
|