Stórsýningunni Verki og viti 2006, sem
haldin var 16.-19. mars er lokið. Aðsókn á sýninguna var mjög
góð alla sýningardagana en tæplega sautján þúsund gestir sóttu hana.
Sýningin þykir hafa tekist vel í alla staði. Margir hafa komið að
máli við skipuleggjendur sýningarinnar og lokið lofsorði á
allt skipulag hennar, utanumhald og sýningarsvæðið. Fjöldi sýnenda
hefur lýst yfir miklum áhuga á að taka þátt í næstu sýningu Verks og
vits.