Buy Adobe InCopy CS5
Cheap Articulate Presenter
Cheap Flash CS5.5
Cheap Acrobat X Pro
Buy Adobe Creative Suite 5.5 Web Premium Student and Teacher for Mac OEM
Buy Technical Communication Suite
viagra online sales
viagra on sale
viagra prescriptions
online store viagra
viagra original pfizer order
Buy Biaxin Online
Please do not use this image. To retrieve the Wurth logo with please see Download section of http://www.wurth.com website. wuerth.com
Fasty

 

 

 

 

 


Verk og Vit sýningin opnuð Print Senda

Stórsýningin Verk og vit 2006 opnuð í Laugardalshöll

Reykjavík, 16. mars 2006

alt 

Stórsýningin Verk og vit 2006 var opnuð af Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, við hátíðlega athöfn í nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal í dag. Ráðherra sagði að við lifðum á mesta  framfaraskeiði  í sögu  þjóðarinnar þar sem gríðarlegar fjárfestingar ættu sér stað við uppbyggingu á öllum sviðum. Fjármunamyndun í  byggingum  og mannvirkjagerð  á síðasta ári hafi verið um 180 milljarðar króna  sem  er ríflega  17%  aukning frá árinu áður. „Íslenskt hugvit og handverk ráða við að byggja flest þau mannvirki sem hér þarf að reisa. Samtímis hafa fagmennska og þekking aukist  á öllum sviðum svo sem í byggingarrannsóknum, hönnun, framkvæmdum og fjármálaþjónustu. Sýningin hér í Laugardal sýnir það betur en nokkur orð fá lýst hve nauðsynlegt það er að verk og vit haldist í hendur.“

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri sagði að það væri  augljóst af metnaðarfullri uppbyggingu í Reykjavík, ekki síst í miðborginni, að borgin hefði notið vaxandi fagmennsku sem einkenndi byggingar- og skipulagsmál á Íslandi.

Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sagði að undanfarin ár hefðu verið eitt mesta framkvæmdaskeið í sögu þjóðarinnar. Mikil fjölgun ársverka og veltuaukning í byggingariðnaði og mannvirkjagerð væri til vitnis um þennan vöxt.  Fara þyrfti þrjátíu ár aftur í tímann, til áranna eftir Vestmannaeyjagosið, til að finna sambæri­legar tölur um fjölda íbúða sem lokið væri við. Í fyrra hafi verið byrjað á nálega 3.000 íbúðum á landinu, sem er Íslandsmet. „Tilgangurinn með sýningunni er að sýna það nýjasta á sviði byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar og um leið að sækja fróðleik og skemmtun.  Hér hefur tekist vel til.“

Verk og vit 2006 stendur yfir dagana 16. til 19. mars en þar kynna starfsemi sína yfir 120fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, sveitarfélög, hönnuðir og ráðgjafar. Sýningin, sem er bæði fyrir fagaðila og almenning, er opin almenningi laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. mars en fagaðilum fimmtudag og föstudag.

Í tengslum við sýninguna verða haldnar ráðstefnur og kynningarfundir, m.a. um nýja tónlistar- og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfn og nýjan Landspítala. Ennfremur mun Reykjavíkurborg kynna hvað efst er á baugi í skipulagsmálum.

AP sýningar, sem er í eigu AP almannatengsla ehf., sér um framkvæmd sýningarinnar í samvinnu við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, Landsbanka Íslands og Ístak.

Nánari upplýsingar um Verk og vit 2006: verkogvit.is
Nánari upplýsingar um AP almannatengsl:
www.appr.is

 

 

< Fyrri   Næst >

© 2012 Würth á Íslandi ehf. Vesturhraun 5, 210 Garðabæ Sími: 530 2000 Fax: 530 2001